Tröllagil 29 er glæsilegt níu hæða fjölbýlishús með 35 íbúðum. Á fyrstu og annarri hæð er fimm deilda leikskóli, Tröllaborgir, sem er rekinn af Akureyrarbæ. Á jarðhæð er hjóla- og vagnageymsla. Á þriðju til níundu hæð eru fimm íbúðir á hverri hæð. Tvær eru tveggja herbergja og þrjár eru þriggja herbergja. Geymslur eru í hverri íbúð. Athugið að í myndaalbúmi hér til hægri eru myndir úr þriggja herbergja íbúð.
- Samgöngur: Frá Tröllagili er um átta mínútna gangur að háskólasvæðinu að Sólborg, og strætóstopp er í næsta nágrenni.
- Umhverfi: Í húsinu er leikskóli og þaðan er stutt í grunnskóla, útivistarsvæði, folf-völl, verslunarkjarnann Sunnuhlíð og Krambúð sem er opin allan sólarhringinn.
- Orka: Rafmagn er á sér mæli fyrir hverja íbúð, en hiti er á sameiginlegum mæli.
- Tæki og búnaður: Í íbúðunum er kæliskápur og eldavél. Þvottavélar og þurrkarar eru í sameiginlegum þvottahúsum og notkun þeirra er gjaldfrjáls.
- Úthlutunarreglur: Umsóknum er raðað í forgangsröð eftir úthlutunarreglum.
- Internet: Í öllum íbúðum FÉSTA er ljósleiðari frá Tengir. Þannig geta íbúar pantað sér internetþjónustu frá þeim þjónustuaðila sem hentar og greiða fyrir það sérstaklega.
- Viðskilnaður húsnæðis: Líkt og gengur og gerist á leigumarkaðnum eiga allir íbúar FÉSTA að skilja við leiguhúsnæði sitt á snyrtilegan hátt. Hér má nálgast gátlista fyrir viðskilnað íbúða.
- Umgengnisreglur: Íbúar eru hvattir til að kynna sér og fara eftir umgengnisreglum húsnæðis í eigu FÉSTA, sjá hér.
- Sameignaþrif: Sameign er þrifin einu sinni í viku og þvottahús aðra hverja viku og deilist kostnaður við þau þrif á allar íbúðir hússins.
Verðlisti í mars 2024* |
Stærð |
Verð |
+rafmagn og hiti (áætlað)** |
Tveggja herbergja íbúðir |
64 fm.15 fm. sameign. |
kr. 148.486,- |
kr. 156.000,- |
Þriggja herbergja íbúðir |
75 fm. 15 fm. sameign. |
kr. 178.194,- |
kr. 187.000,- |
Að auki greiðir hver íbúð 4.300kr á mánuði fyrir sameignaþrif.
*Leiguverð er bundið við neysluvísitölu og breytist mánaðarlega samkvæmt henni
**Kostnaður vegna hita og rafmagns er jafnar greiðslur, er uppfært í ágúst ár hvert.
Ertu í síma? Smelltu hér fyrir myndir.