Drekagil 21 er glæsilegt átta hæða fjölbýlishús með 29 íbúðum. Á jarðhæð eru geymslur fyrir íbúðir sem og hjóla- og vagnageymslur. Á fyrstu til sjöundu hæð eru fjórar íbúðir, tvær tveggja herbergja og tvær þriggja herbergja á hverri hæð ásamt þvottahúsi fyrir hverja hæð nema á fyrstu hæð þar sem þvottahús þeirrar hæðar er á jarðhæð.
- Samgöngur: Frá Drekagili er um átta mínútna gangur að háskólasvæðinu á Sólborg, og strætóstopp er í næsta nágrenni.
- Umhverfi: Í nágrenni við húsið er leikskóli og grunnskóli, útivistarsvæði, folf-völlur, verslunarkjarninn Sunnuhlíð; og Krambúð sem er opin allan sólarhringinn.
- Orka: Rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð, en hiti er á sameiginlegum mæli.
- Tæki og búnaður: Í íbúðunum er kæliskápur og eldavél. Þvottavélar og þurrkarar eru í sameiginlegum þvottahúsum og notkun þeirra er gjaldfrjáls.
- Úthlutunarreglur: Umsóknum er raðað í forgangsröð eftir úthlutunarreglum.
- Internet: Í öllum íbúðum FÉSTA er ljósleiðari fré Tengir. Þannig geta íbúar pantað sér internetþjónustu frá þeim þjónustuaðila sem hentar og greiða fyrir það sérstaklega.
- Viðskilnaður húsnæðis: Líkt og gengur og gerist á leigumarkaðnum eiga allir íbúar FÉSTA að skilja við leiguhúsnæði sitt á snyrtilegan hátt. Hér má nálgast gátlista fyrir viðskilnað íbúða.
- Umgengnisreglur: Íbúar eru hvattir til að kynna sér og fara eftir umgengnisreglum húsnæðis í eigu FÉSTA, sjá hér.
- Sameignaþrif: Sameign er þrifin einu sinni í viku og þvottahús aðra hverja viku og deilist kostnaður við þau þrif á allar íbúðir hússins.
Verðlisti í mars 2024*
|
Stærð
|
Verð
|
+rafmagn og hiti (áætlað)**
|
Tveggja herbergja íbúðir
|
57 fm.
20 fm. sameign.
|
kr. 139.662,-
|
kr. 147.000,-
|
Þriggja herbergja íbúðir
|
75 fm.
15 fm. sameign.
|
kr. 175.415,-
|
kr. 185.000,-
|
Að auki greiðir hver íbúð 4.300kr á mánuði fyrir sameignaþrif.
*Leiguverð er bundið við neysluvísitölu og breytist mánaðarlega samkvæmt henni
**Kostnaður vegna hita og rafmagns er jafnar greiðslur, er uppfært í ágúst ár hvert.
Ertu í síma? Smelltu hér fyrir myndir.